Læknisráð og Rasismi!
Sælt veri fólkið. Langt síðan hér hefur verið bloggað, enda hefur ekkert skemmtilegt á daga mína drifið undanfarið!
Ég fór til læknis vegna þessa höfuðverks sem hefur verið að hrjá mig núna undanfarið, hálsbólgu og annarra minni kvilla og var ég bara settur á kúr af bólgueyðandi lyfjum og skipaði læknirinn mér í ræktina 3-4 sinnum í viku!
Kabarett er núna í gangi í Freyvangsleikhúsinu, síðasta sýning(af tveim) er í kvöld og eftir því fylgir ball! Hann fékk góðar undirtektir í gær og var mikið hlegið! :)
Ég pantaði meira dót af amazon fyrir helgi. Bók eftir Mikael Checkov, tvö leikrit eftir höfund Koddamannsins(man ekki hvað hann heitir eins og er), austurlenska heimspeki og DVD sem heitir Top Secret!
Oh, það er eitt sem hefur komið fyrir sem gerði mig mjög súran! Lúsifer er dáinn(iPodinn minn)! Hann hlýtur að hafa slegist utan í eða eitthvað því að skyndilega fór ég bara að fá villuskilaboð! Samkvæmt Apple.com þá er þetta vélbúnaðarvensen, líklega harði diskurinn! Og þar sem að hann er ekki keypur beint í gegnum apple, engin ábyrgð :/
Svo, ef einhver er að fara til USA, þá má viðkomandi kaupa fyrir mig svartan iPod Nano! :)
Rasismi!
Shamelessly Stolen from Hnakkuz!
1) ...Þú tekur það nærri þér að strætóbílstjórinn sem keyrir þig sé grautfúlt pólskt sauðnaut en ekki grautfúlt íslenskt sauðnaut eins og þú átt að venjast.
2) ...Þú röflar, með fullan gúlann af Dominos pizzu, um að útlendingar eigi að aðlagast íslenskri menningu eða drulla sér heim milli þess sem þú rotnar að innan fyrir framan nýjasta ameríska raunveruleikaþáttinn í sjónvarpinu.
3) ...Þú finnur hjá þér þörf til að tjá þig á internetinu um að "Údlendingar eygi að læra ísslensku eða þeir verðy sentir heim með firstu vél!"
4) ...Þú örvæntir yfir möguleikanum á því að innflytjandi gæti hugsanlega unnið sér inn rétt á bótum úr íslenska almannatryggingakerfinu með tíð og tíma, en fagnar barnabótunum ákaft hver mánaðarmót með hinum bótaþegunum á barnalandi.
5) ...Þú segist hafa samúð með öllu fátæka fólkinu úti í heimi en brjálast þegar það vill koma til Íslands til að vinna sér inn pening svo það hætti að vera fátækt.
6) ...Þér finnst Magnús Þór Hafsteinsson allt í einu ekki heimskur lengur eftir að hann fór að tala gegn útlendingum og ætlar að kjósa frjálslynda flokkinn eftir að hann fór að spúa hræðsluáróðri um útlendinga.
7) ...Þú ert gervifélagshyggjumanneskja hefur miklar áhyggjur af því að flæði útlendinga til landsins rýri kjör láglaunaðra Íslendinga á meðan þér er augljóslega skítsama um kjör fátækra útlendinga sem vilja koma hingað til að fá betri laun en í sínu heimalandi.
8) ...þú kvartar yfir því að allir séu alltaf að kalla þig rasista þegar þér finnst þú bara vera að "horfa raunsæum augum á málin".
9) ...þú finnur til óstjórnlegrar bræði þegar þú heyrir um að útlendingur hafi nauðgað konu, á meðan tíðar fréttir af afrekum alíslenskra nauðgara fara að mestu framhjá þér án þess að valda þér teljanlegu hugarangri.
10) ...þú tjáir skoðanir þínar á málefnum útlendinga í vinsælum sjónvarpsþætti og annar hver rasistaskíthæll á landinu kommentar á heimasíðunni þinni og lýsir yfir eindregnum stuðningi við málflutninginn.
Margt má betur fara á Íslandi, en við skulum ekki falla í gryfju kynþáttafordóma!
-Sindri Svan

6 Comments:
æji, leiðinlegt að heyra með i-podinn... ég veit reyndar um alveg helling af fólki sem er í USA ;) mamma, saga og kærastinn hennar svona t.d.
Kommentin við blogginu hans Hnakkusar eru það ótrúlegasta sem ég hef séð...
Blessuð sé minning Lúsifers.
Það er sjálfsagt lítið við þessu að segja nema "fólk er fífl". Ég hef líka lengi sagt það að íslendingar séu rasistar, langflestir. :P
Oh hófy, takk fyrir það! :) átti ekki von á svona snöggu svari! Verst að maður á engan pening :o
Fólk Er Fífl ^^
Hæ sæti, hvað segiru?
Það er margt búið að ske hjá mér undanfarið og það væri virkilega næs að geta heyrt í þér, enda er líka frekar langt síðan síðast :)
Vertu nú einu sinni online á msn þegar ég er það ;) ...reyndar er msnið eitthvað að stríða mér núna, kemst ekki inn en samt er allt í orden þegar ég villuprófa :/
Heyri vonandi í þér sem skjótast :)
Kveðjur,
Hilda
Sendu inn athugasemd
<< Home