miðvikudagur, október 25, 2006

Kennarar og skynvillur!

Ég hugsa(já, ég hugsa...) að kennarar þjáist allir af krónískri tímaskynvillu. Þetta er alveg hreint með ólíkindum! Ég er viss um að þeir hugsa "best að byrja rólega svo grei krakkarnir fái nú ekki ógeð..." og einn og hver einasti kennari slakar á verkefnum þar til að 2/3 er búinn af önninni. Þá er eins og að þeir fatti að önnin er að klárast og þeir eiga alveg helminginn af öllu námsefninu eftir!
Svo... Núna er ég með stóran fyrirlestur um Kína sem ég á að skila á morgun, ritgerð um Lenin sem þarf að skila á föstudag og verkefni í Félagsfræði sem þarf að skila á föstudag. En ekki að ég sé eitthvað búinn að vera að slappa af með þetta og fresta þessu þar til á síðustu stundu; þessir blessuðu kennarar leggja þetta allt fyrir á sama tíma! Þetta er allt stórt samsæri!! :P grrr!

Jæja, vopnaður 4 Burn orkudrykkjum, 2 léttbjórum og banönum er ég farinn í að slútta þessu! :)

Eigið góða helgi gott fólk!

5 Comments:

Anonymous hjöllz said...

Já ég skil hvað þú átt við með of mikið álag í sambandi við verkefnaskil, er ekkert smá ánægður að vera á íþróttabraut og þarf því ekki að skila mikið af ritgerðum...

Fæ hinsvegar að kenna litlum gríslingum :P

11:48 PM  
Anonymous Elín Rún said...

já kennararnir setja einhvernveginn stærstu verkefnin fyrir á saman tíma.. en nú er að koma vetrarfrí þannig ég þarfe ekki að hafa áhyggjur núna ;) en ef þú ert að spá í leggja bílnum þínum þá ætla ég bara segja þér að bíllinn minn sést rosalega sjaldan á rúntinum..

9:03 PM  
Anonymous Sveinbjörg said...

Hæhæ... Já, ég er alveg sammála þér! Það er verið að hrúga verkefnum og ritgerðum á mig núna!

Vonandi hefur þú það gott :)

10:38 PM  
Anonymous Sísí said...

Eg er svo fokking sammála þér.. allveg gegt mikið.. þetta er pottþétt samsæri!!!

6:53 PM  
Anonymous Særún said...

ohhhh.. hvað það er gott að vera búin með skólann... thíhí... :D

2:49 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Home